Norðurbrú 5, 210 Garðabær
69.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
71 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2004
Brunabótamat
38.540.000
Fasteignamat
62.800.000

Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg og rúmgóð tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í lyftuhúsi ásamt stórum sólpalli og stæði í bílageymslu. Eignin er skráð 71,1 fm og skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu / borðstofu ásamt geymslu í kjallara. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða tölvupósti: [email protected] 

Nánari lýsing eignar:
Komið er inn í anddyri með fataskáp. Alrýmið er opið og bjart með stórum gluggum og útgengi út á stóran afgirtan sólpall til vesturs. Eldhúsið er með fallegri ljósri eikar innréttingu með góðu skápaplássi. 
Baðherbergið er með sturtu, salerni, handklæðaofni og rúmgóðri eikar innréttingu með handlaug. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi. Svefnherbergið er mjög rúmgott góðum fataskápum. Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir ásamt  7,3 fm geymslu. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er síðan á jarðhæð við hlið íbúðar. Lyfta er í húsinu. Einstaklega rólegt og fallegt hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla og Jónshús félagsheimili eldri borgara. Einnig er örstutt í fallegar gönguleiðir meðfram sjónum og ylströndina.

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða tölvupósti: [email protected] 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.