Ásholt 40, 105 Reykjavík (Austurbær)
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
63 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1990
Brunabótamat
36.840.000
Fasteignamat
56.000.000

**VEGNA ÓVIÐRÁÐANLEGRA AÐSTÆÐNA FÆRIST OPIÐ HÚS YFIR Á MIÐVIKUDAGINN 8. MAÍ KL. 17:00-17:30

**STÆÐI Í BÍLAKJALLARA**


TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í SÖLU: Falleg og björt, 63,6 fm, 2ja herbergja íbúð á jarðhæð, miðsvæðis í Reykjavík.
Íbúðin skiptist í anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, svefnherbergi, og baðherbergi ásamt sérafnotareit til suðurs. Stæði í bílageymslu og geymsla (6,2 fm) í sameign.
Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 , tölvupóstur [email protected]


Nánari lýsing: 63,6 fm. íbúð við Ásholt 40, Reykjavík. Íbúðin er skráð 57,4 fm. og geymsla 6,2, samtals 63,6 fm. Stæði í lokuðum bílakjallara fylgir.
Komið er inn í anddyri sem tengir öll rými íbúðar. Alrými rúmar opið eldhús með hvítri og viðarlitaðri innréttingu og eyju, stofu og útgengi á sérafnotareit. Rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi. Baðherbergi er með hvítri innréttingu, baðkari og aðstöðu fyrir þvottavél. Íbúðin er öll parketlögð, fyrir utan baðherbergi, sem er flísalagt. Stæðí í bílakjallara og góð geymsla í sameign. Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara, ásamt dekkja- og kerrugeymslu, hjólageymslu, bílakjallara og bílaþvottaaðstöðu.

Íbúðin er í íbúðarkjarna við rætur miðbæjarins og eru fjórar íbúðir í stiganginum. Sameiginlegur, lokaður garður fyrir allar íbúðir kjarnans. Húsvörður er í húsinu og Eignaumsjón sér um húsfélagið. Stutt er í alla helstu þjónustu.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.