Klapparstígur 1A, 101 Reykjavík (Miðbær)
67.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
71 m2
67.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1990
Brunabótamat
51.230.000
Fasteignamat
66.350.000
Opið hús: 03. júlí 2024 kl. 12:15 til 12:45.

Matthildur Sunna Þorláksdóttir lgfs s. 690 4966/[email protected] verður á staðnum og sýnir

Fasteignasalan TORG kynnir í sölu: Tveggja herbergja, 71,2 fm íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi, í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, svefnherberg, baðherbergi og svalir til suðurs út frá alrými. Sérmerkt bílastæði í bílastæðahúsi og sameiginleg hjólageymsla og sér geymsla í sameign. Húsvörður er í húsinu. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og fallegar gönguleiðir við sjóinn. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða [email protected]

Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri, með skáp fyrir yfirhafnir. 
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými með eldhúsinu. Stofa er björt og með gólfsíðum gluggum til suðurs og vesturs.
Eldhús er með hvítri innréttingu á einum vegg og viðarlitaðri borðplötu. Stálplata á vegg fyrir ofan innréttingu til að auðvelda þrif. Gengið er út á suðursvalir úr eldhúsi.
Svefnherbergið er rúmgott og með rúmgóðum, hvítum fataskápum. Gólfsíður gluggi í herbergi til norðurs.
Baðherbergi er með hvítri, nettri innréttingu, efri speglaskáp og baðkari með sturtu. Dökkar flísar á gólfi sem ná upp á baðkar og hvítar veggflísar fyrir ofan baðkar.
Gólfefni á íbúð er parket fyrir utan baðherbergi, þar sem eru flísar.
Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir. Skv. húsfélagi er búið að rafvæða bílakjallara og því möguleiki að setja upp rafmagnshleðslustöð í bílastæði.
Sér geymsla (6,3 fm) er í sameign.
Sameiginlegt þvottahús er í sameign, þar er þvottavél og þurrkara í eigu húsfélags sem íbúar hafa aðgang að.
Hjóla- og vagnageymsla er í bílakjallara, staðsett við bílskúrshurð. Ekið er inn í bílakjallara frá Skúlagötu.
Lóðin er fallega gróin og eru nokkur sameiginleg stæði á lóð.
Húsfélagið sér um öll sameiginleg þrif og húsvörður er á staðnum.
Vakin er athygli á því að íbúðin er skráð í eignaskiptayfirlýsingu 64,0 m2 og geymsla 6,3 m2, samtals 70,3 m2. Hins vegar er íbúðin skráð hjá Þjóðskrá Íslands 65,1 m2 og geymslan 6,1 m2, samtals 71,2 m2.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.