Kjóastaðir 2, 806 Selfoss
379.000.000 Kr.
Lóð/ Jörð
20 herb.
65535 m2
379.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
18
Baðherbergi
6
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
261.940.000
Fasteignamat
152.998.000

Fasteignasalan TORG kynnir: Jörðin Kjóastaðir 2 í Bláskógabyggð, örstutt frá Geysi í Haukadal. Alls er jöðrin um 176,8 ha samkv. yfirliti Þjóðskrá. Þar af er 80 ha ræktað land. Í húsakostum á jörðinni er rekin gisting og veitingasala, og Geysir hestaleiga sem og tjaldleiga/svæði. Mikil tækifæri eru til áframhaldandi uppbyggingar á ferðaþjónustu. Nánari uppl. veitir  Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected] eða Sigurður Gunnlaugsson gsm 8986106 eða [email protected] eða Elka Guðmundsdóttir lgfs í GSM: 863-8813 [email protected]
Jörðin er mitt á milli Geysi og Gullfoss, inn á Gullna hringnum. Á jörðinni er Geysir Hestaleiga og gisting í sjö húsum á jörðinni, stórt gisthús með um 8 herbergjum, alls 22 rúm, þrjú minni gistihús með rými fyrir fjóra til sex og eitt hús fyrir starfsfólk. Stór hlað / hesthús með veislusal og stóreldhúsi og einbýlishús. Einnig er tjaldsvæði á jörðinni sem er rekið allt árið um kring af þriðja aðila. Útsýni er til allra átta m.a. yfir Geysi í Haukadal, upp á Langjökul o.fl. enda jörðin á hálendisbrúninni.


Nánari lýsing: Gistihús, skráð 192,2fm. með 8 herbergjum, fjörga- og tveggja-manna með alls 22 rúm til útleigu. Timburhús á steyptum grunni, og er það allt í rustic stíl. Húsið hefur fengið reglulegt viðhald. Salernisaðstaða er góð og sturtuaðstaða einnig, alls eru fjórar sturtur og fjögur salerni í húsinu. Í suðurenda hússins er sameiginlegt rými, kaffi-aðstaða, kæliskápur og lítil aðstað til að borða nesti, setustofa fyrir gesti með miklu útsýni yfir Geysissvæðið og sést Strokkur gjósa reglulega þaðan.                                                                                                                Minni gistihús, fjögur minni timburhús í þyrpingu eru á hlaðinu. Þrjú þeirra eru um 28,7 fm hvert. Í þeim eru gistiaðstaða fyrir 4 – 6, með eldhúskrók, baðherbergi og borðkrók, setustofu. Starfsmannhús er um 23fm að stærð, með fjórum herbergjum. 
Einbýlishús er timburhús alls 115,9 fm sem skiptist í rúmgóða forstofu sem er flísalögð. Hol með parketi á gólfi og þar er stór og björt borðstofa með útgengi út á timburverönd sem snýr til austurs. Rúmgóð stofa og þaðan er útgengt út á stóra timburverönd í suður. Mikið útsýni er úr stofunni. Eldhús er með snyrtilegri viðarlitaðri innréttingu og góðu skápaplássi. Tengi fyrir uppþvottavél. Herbergin eru alls þrjú, tvö minni barnaherbergi og rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Baðherbergið er með sturtuklefa og flísalagt gólf. Þvottahús er inn af forstofu.

Geysir hestaleiga:  Hlaða, / hesthús með veislusal og stóreldhúsi. Hesthúsið er með 21 stíu, eins til tveggja hesta. Inn af hesthúsinu er rúmgott geymsluherbergi fyrir hnakka, hjálma og reiðtygi ásamt göllum fyrir c.a.25 manns. Búnaður til hestaleigu fylgir og möguleiki að kaupa 40-45 reiðhesta með sé þess óskað.Í hlöðu / hesthússinu er rúmgóð setustofa og inn af henni er salerni, stór borðsalur með veitingaleyfi fyrir 44 manns. Allur borðbúnaður er til staðar og fylgir og gott eldhús með öllum tilheyrandi tækjum og búrherbergi.
Tjaldsvæði er leigt af þriðja aðila á túni norðan við húsin, og er á sér fastanúmeri og er rekin í hringlaga tjöldum samkvæmt leigusamningi við þriðja aðila, leigusamningur um tjaldsvæðið fylgir með jörðinni. 

Niðurlag: um er að ræða frábærlega staðsetta jörð á Gullna hringnum, rétt utan við Geysi í Haukadal og á leiðinni upp að Gullfossi. Mikil tækifæri fyrir réttan aðila til áframhaldandi uppbyggingar ferðaþjónustu.
Nánari uppl. veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected] eða Sigurður Gunnlaugsson gsm 8986106 eða [email protected] eða  Elka Guðmundsdóttir lgfs í GSM: 863-8813 [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.