Opið hús: 04. júlí 2024 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Goðheimar 23, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 4. júlí 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg og góð 3herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara með sér inngangi, í 4 íbúða fjölbýli við Goðheima 23 í Reykjavík, íbúðin er skráð samkvæmt FMR, 103,5fm með geymslu en hún er innan íbúðarinnar. Sameiginleg vagna, hjóla og lagnarími er í sameign hússins á jarðhæð.
Nánai lýsing : Frá inngangi er komið inn í opið rúmgott rými með anddyri, eldhúsi og borðstofu.
Eldhús er rúmgott með hvítri innréttingu og eyju með gashelluborði bakarofn er í vinnu hæð. Granit borðplötur. Frá borðstofu er komið inn í rúmgott svefnherbergi og á
baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með þvottavéla aðstöðu, sturtu með glerskilrúmi, hvítri innréttingu með handlaug og vegghengdu salerni. Frá eldhúsi er gengið í bjarta stofu með glugga á tvo vegu, frá stofu er gengið í rúmgott svefnherbergi og geymslu íbúðar sem nú er nýtt sem fataherbergi.
Gólfefni íbúðar eru öll harðparket nema á baðherbergi sem er flísalagt.
Árið 2023 var húsið sprunguviðgert og málað, þak yfirfarið og skipt um eh glugga á efstu hæð hússins, svalir voru lagfærðarog málaðar. Tröppur sem lyggja upp á efri hæðir voru endurgerðar og hitalögn lögð í þær, þeim framkvæmdum er að mestu lokið.
Falleg björt íbúð á jarðhæð með sér inngangi á þessum vinsæla og góða stað.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]