Rúgakur 3, 210 Garðabær
92.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
2 herb.
115 m2
92.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
70.290.000
Fasteignamat
86.550.000

Fasteignasalan TORG kynnir : 
Mjög falleg og vel rúmgóð 115,7fm tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi af jarðhæð í viðhaldsléttu lyftuhúsi á þessum sívinsæla stað. Rúmgóðar suður svalir með fallegu útsýni. Eignini fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Eignin er vel staðsett innst í botnlanga. Eignin skiptist í forstofu, rúmgóða stofu og borðstofu, snyrtilegt eldhús, svefnherbergi með fataherbergi, stórt baðherbergi og sér þvottahúsi innan íbúðar. Lyfta frá bílageymslu upp á hæðina. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á [email protected]

Nánari lýsing:

Forstofa: Gengið er inn um sérinngang í forstofu beint af jarðhæð, þrefaldur fataskápur sem nær upp í loft, flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa : mynda eitt mjög bjart og rúmgott rými, parket á gólfi, útgengt út á 13,2fm suð/vestur svalir með fallegu útsýni.
Eldhús: er opið yfir í stofu- og borðstofurými að hluta mjög snyrtileg viðarinnrétting úr ljósum viði og liggur á tveimur veggjum með efri og neðri skápum, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi. 
Svefnherbergi : mjög stórt og rúmgott með parketi á gólfi, innaf herbergi er vel útbúið fataherbergi með hillum, skúffum og hengi, parket á gólfi.
Baðherbergi : rúmgott flísalagðir veggir og gólf. Innrétting með góðu skápaplássi. Stór spegill yfir innréttingu. Baðkar og góður sturtuklefi. Opnanlegur gluggi, hiti í gólfi og salerni upphengt.
Þvottahús : með hvítri innréttingu, flísar á gólfi og hiti er einnig í gólfi.
Geymsla : mjög rúmgóð 21fm sér geymsla er í kjallara.
Bílastæði : Sérmerkt bílastæði í kjallara fylgir eignini.
Sameign : Mjög snyrtileg, þvottaaðstaða yfir bíla er í bílakjallaranum ásamt hjóla- og vagnageymslu með útgengi út á hjólastíg.
Annað : Húsið er einangrað og klætt að utan með málmklæðningu, en viðarklæðning er við svalir sem gefur náttúrulegt og hlýlegt yfirbragð.

Einstaklega rúmgóð og falleg eign í tólf íbúða fjölbýli á þessum vinsæla stað í Garðabæ, þar sem örstutt er í leikskóla, skóla og Krónuna.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á [email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.