Opið hús: 19. september 2024 kl. 17:00 til 17:30.OPIÐ HÚS: Vefarastræti 34, 270 Mosfellsbær, Íbúð 203. Verið velkomin í opið hús fimmtudaginn 19. september milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Fasteignasalan TORG kynnir:Vel skipulögð og björt þriggja herbergja íbúð í nýlegu húsi í Mosfellsbæ.
Íbúð 203 er skráð 69,1 fm og skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og bjart alrými eldhúss og stofu með útgengi á svalir til suðurs.
Allar nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali í síma 623-8889 og [email protected]Nánari lýsing:Íbúðin er staðsett á annarri hæð í lyftu húsi byggt árið 2017 í nýlegu hverfi í Mosfellsbæ.
Íbúð 203.
Gengið er inn um sérinngang af svölum.
Forstofa er með góðum fataskáp og flísar á gólfi.
Svefnherbergi 1: Rúmgott herbergi með gluggum til norðurs og stórum fataskáp.
Svefnherbergi 2: Gott barnaherbergi með gluggum til norðurs.
Eldhús og stofa mynda saman bjart alrými. Eldhús er L-laga með viðaráferð og hvítum efri skápum. Stofa er björt og með útgengi á stórar svalir til suðurs.
Baðherbergi með "walk-in" sturtu og upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og sturtuvegg.
Harðparket á öllum gólfum nema forstofu og baðherbergi.
Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð í nýlegu húsi. Fallegt útsýni af svölum.
Allar nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali í síma 623-8889 og [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.