Barðavogur 36, 104 Reykjavík (Vogar)
112.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
5 herb.
153 m2
112.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1954
Brunabótamat
69.400.000
Fasteignamat
0


FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR Í SÖLU: Fjögurra herbergja efri hæð með sér inngang, ásamt íbúð í kjallara við Barðavog 36, 104 Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyri og gang, stiga upp á efri og neðri hæð, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsluloft. Svalir út frá eldhúsi til suðvesturs. Íbúðin í kjallara skiptist í eldhús, hol, svefnherbergi og baðherbergi. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða [email protected]

Nánari lýsing:
Verið er að breyta skipulagi húss, ný skráning verður eftirfarandi:153,3 fm sem skiptast í 104,1 fm íbúðarrými á 2. hæð, 8,5 fm á 1. hæð og 40,7 fm í kjallara. Geymsluloft er ekki skráð inni í fm.
Komið er inn um sér inngang, þar sem gengið er upp á efri hæð og niður í kjallara.
Gengið er upp í opið hol með skáp er á efri hæð, þaðan er gengið inn í mjög rúmgott hjónaherbergi, rúmgott barnaherbergi með teppi á gólfi, baðherbergi með viðarlitaðri skúffueiningu undir vaski, upphengdu klósetti, baðkari og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar í hólf og gólf að hluta til.
Úr holi er einnig gengið inn í bjarta stofu og þaðan inn í eldhús. Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju með viðarlituðum borðplötum. Eldavél og bakaraofn eru í eyju. Pláss fyrir innbyggða uppþvottavél. Gengið er út á svalir til suðvesturs frá eldhúsi.
Þriðja herbergið er út frá eldhúsi, það er rúmgott og teppalagt.
Mjög rúmgott geymsluloft er yfir allri hæðinni, sem býður upp á marga nýtingarmöguleika. Góð lofthæð.
Gengið er inn í kjallaraíbúð um sama inngang og hæðina, möguleiki er þó að ganga inn um kjallara. Íbúðin skiptist í eldhús með viðarlitaðri innréttingu, ljósri borðplötu og litlum borðkrók, hol, svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. Svartar flísar á gólfi.
Fallegur, sameiginlegur garður til suður-suðvestur.

Góð staðsetning í grónu hverfi með leikskólum, grunnskólum og menntaskóla í göngufæri ásamt því að stutt er í Skeifuna.

Að sögn seljenda hefur eftirfarandi verið gert 2024:
Búið er að endurnýja brotnar þakflísar þar sem þurfti
Skipta um þakkant
Múrviðgerðir á húsi og skorstein og hús málað
Skipta um glugga og gler þar sem þurfti
Endurnýja skólp út í götu
Endurnýja eldhús og böð
Skipta um gólfefni þar sem þurfti og pússa önnur upp og lakka
Innra byrði málað
Skipta um rafmagnstöflu, kalda vatns inntak, settur brunnur.
Rafmagn, pípulagnir og múrviðgerðir voru framkvæmdar af löggiltum iðnmeisturum á hverju sviði

Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.