Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega falleg og rúmgóð tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi við Stakkholt 2a. Eignin er skráð 71,6 fm og skiptist svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í kjallara ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða tölvupósti: [email protected] Nánari lýsing: Gengið er inn í opið og bjart alrými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu. Eldhúsið er með ljósri fallegri L laga innréttingu með bakaraofni, helluborði og veggháf. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Frá stofu er gengið út á 6,7 fm svalir til norð-vesturs. Svefnherbergið er mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Baðherbergið er mjög rúmgott með "walk in" sturtu, ljósri innréttingu með handlaug og efri skápum með speglum. Inn á baði er síðan innrétting sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Niðri í kjallara er síðan sér 7,7 fm geymsla ásamt bílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara.