Hafnarbraut 12G, 200 Kópavogur
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
78 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
39.700.000
Fasteignamat
62.150.000

TORG FASTEIGNASALA S. 535-1000 KYNNIR: Þriggja herbergja, 78,7 fm íbúð á jarðhæð í fallegu fjölbýlishúsi við Hafnarbraut 12G á vinsælum stað í vesturbæ Kópavogs. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu og eldhús í alrými, svefnherbergi og herbergi/geymsla og baðherbergi.
Spennandi hjóla-, hlaupa- og göngustígar við sjávarsíðuna. Örstutt frá sjónum og í göngufæti við Sky lagoon böðin. 
Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða [email protected].

Nánari lýsing:
Íbúðin er á jarðhæð þar sem gengið er niður hálfa hæð frá bílastæði.
Komið er inn í anddyrishol, með hvítum skáp, sem tengir rými íbúðar.
Stofa og eldhús er í alrými, eldhúsið er með hvítri innréttingu og eyju með ljósri HPL borðplötu, eldavél með kolasíu háf yfir, bakaraofn í vinnuhæð og innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Stofan er með stórum gluggum og útgengt á 11,4 fm sérafnotapall til vesturs.
Gengið er frá alrými inn í rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Geymsla/barnaherbergi með glugga sem gengið er inn í frá anddyrisholi
Baðherbergi  er með hvítri innréttingu undir vaski og efri speglaskáp. Sturta með skilrúmi úr gleri og vegghengt klósett með innbyggðum kassa. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baði. Flísar á gólfi og vegg að hluta til. Vélrænt útsog á baðherbergi.
Harðparket er á gólfum íbúðar fyrir utan baðherbergi. Rafmagnsgluggatjöld í stofu og Philips Hue ljósaperur fyrir snjalllýsingu.
Sérmerkt bílastæði á lóð fylgir.
Sameiginleg vagna/hjólageymsla.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.



 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.