Opið hús: 19. september 2024 kl. 17:30 til 18:00.***OPIÐ HÚS FIMMTUDAGINN 19. SEPT FRÁ 17:30 - 18:00***
Fasteignasalan TORG kynnir:
Virkilega falleg 5 herbergja íbúð á 2.hæð (merkt 306) í lyftuhúsið með stæði í bílageymslu. Eignin stendur á sjávarlóð með fallegu útsýni úr stofuglugga yfir að Álftanesi, Seltjarnarnesi og Snæfellsjökli. Eignin er skráð 118,1 fm og skiptist í 4 svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, sér þvottahús innan eignar og geymslu í kjallara. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða tölvupósti: [email protected] Nánari lýsing: Komið er í inn forstofu með rúmgóðum fataskáp. Inn af forstofu er þvottahús. Við tekur síðan opið og bjart aldými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu. Eldhúsið er með eikarinnréttingu og svörtum stein á borðum. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð og vifta fylgir með. Stofa/borðstofan er opin og björt með glugga sem vísar til norð-vesturs út á sjó. Frá stofu er gengið út á svalir til suðurs. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með sturtu, eikarinnréttingum og svörtum steini á borði. Hjónaherbergi er rúmgott með eikarfataskápum. Barnaherbergin eru þrjú, fataskápar í öllum herbergjum. Á gólfum er eikarparket utan baðherbergis og þvottahúss sem eru flísalögð. Í sameign er 6,6 fm geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Sér stæði í upphitaðri bílageymslu merkt B12. Lyfta er í húsinu.
Arkitekt hússins er Björn Ólafs. Húsið er byggð árið 2004 af BYGG. Húsfélagið er virkt og vel rekið, sameiginlegt húsfélag fyrir Strandveg 9-11. Sjálandsskóli og leikskólinn Sjáland í fárra mínútna göngufæri, án þess að fara yfir götu.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða tölvupósti: [email protected]