Hverfisgata 85, 101 Reykjavík (Miðbær)
73.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
64 m2
73.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
51.690.000
Fasteignamat
67.600.000
Opið hús: 21. september 2024 kl. 13:00 til 13:30.

OPIÐ HÚS: Hverfisgata 85, íbúð 403. Verið velkomin í opið hús laugardaginn 21. september milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Fasteignasalan TORG kynnir: Bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja enda íbúð á fjórðu hæð í nýlegu húsi á Hverfisgötu 85 í miðbæ Reykjavíkur.
Eignin er íbúð 403 og er skráð 64,9 fm.
Eignin skiptist í forstofu, bjart alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, svalir, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stæði í bílakjallara og geymsla í kjallara.
Allar nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali í síma 623-8889 og [email protected]

Nánari lýsing:
Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan, byggt árið 2019. 
Anddyri: Komið er inn í góða forstofu með þreföldum skáp og flísum á gólfi.
Alrými: Samliggjandi eldhús, borðstofa og stofa með gólfsíðum gluggum og útgengi út á svalir til vesturs. Fallegt útsýni af svölum.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með ljósum stein á borðum og vönduðum eldhústækjum. Innbyggð uppþvottavél. Eldhúseyja með gufugleypi og helluborði. 
Borðstofa og stofa: Bjart rými með gólfsíðum gluggum á tvo vegu.
Baðherbergi: Hvít innrétting, "walk in" sturta og vegghengt salerni. Flísar á gólfi og sturtuveggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. 
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með hvítum fimmföldum fataskáp. 
Gólfefni á íbúðinni er fallegt ljóst harðparket nema í forstofu og baðherbergi.
Bílakjallari er á tveimur hæðum, keyrt er inn frá Vitastíg. Íbúðinni fylgir merkt stæði í lokuðum bílakjallara ásamt góðri geymslu.

Björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð í nýlegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Stæði í bílageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali í síma 623-8889 og [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.