Opið hús: 21. september 2024 kl. 13:00 til 13:30.Opið hús: Grýtubakki 22, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 202. Eignin verður sýnd laugardaginn 21. september 2024 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Fasteignasalan TORG kynnir fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á 2 hæð í Grýtubakka 22, 109 Reykjavík. Íbúðin telur 71 fm samkvæmt FMR og þar af 8,9 fm geymsla. Húsið hefur verið mikið endurnýjað síðustu ár. Frábær fyrstu kaup. Skipulag íbúðar: forstofa, tvö svefnherbergi, eldhús, stofa, baðherbergi og svalir. Sérgeymsla er í sameign sem og hjóla/vagnageymsla.Allar nánari upplýsingar veita: Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða í gegnum netfangið [email protected]
Nánari lýsing:Forstofa: Parket á gólfi og fatahengi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og mikið skápapláss.
Barnaherbergi: Er Parketlagt með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Bað með sturtuaðstöðu, uppáhengt klósett, tengi fyrir þvottavél og þurrkarar, hiti í gólfi og flísar.
Eldhús: Er með fallegri innréttingu, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, helluborð í borðplötu og parket á gólfi.
Stofa: Með parketi á gólfi, út gengt úr stofu á svalir.
Geymsla: sér geymsla er í sameign.8,9fm.
Hjóla/vagnageymsla: Er í sameign.
Endurnýjað innan íbúðar.2021: Skipt var um ofna og ofnalagnir að hluta til.
2021: Skipt um allt rafmagn, gólf, parket, eldhús og hurðar
2019/2020: Inn á baðherbergi var settur hiti í gólfið, lagðar niður flísar og skipt um klósett.
2019/2020: Skipt um glugga og svalahurð.
Nýlegar framkvæmdir á eign skv. seljanda Þakjárn endurnýjað árið 2019
Gluggar endurnýjaðir 2019
Húsið allt málað að utan 2020
Sameign máluð 2021
Um er að ræða mikið endurnýjaða fjölskyldueign á vinsælum stað í bökkunum í neðra Breiðholti. Öll þjónusta, skólar, leikskólar og afþreying í göngufæri. Einnig er stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.Allar nánari upplýsingar veita: Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða í gegnum netfangið [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.