Furuvellir 32, 221 Hafnarfjörður
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
5 herb.
214 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
92.800.000
Fasteignamat
120.950.000

Fasteignasalan TORG og Svavar Friðriksson löggiltur fasteignasali kynna: ***AUKA ÍBÚÐ***
Afar fallegt og hlýlegt 155,1meinbýlishús á einni hæð auk 59,3m2 bílskúrs til samans 214,4m2 samkvæmt þjóðskrá. Húsið er timburhús með einnar tommu múrsteinskápu. Góð forstofa með fataskápum, hjónaherbergi með fataherbergi, tvö barnaherbergi, stór stofa og borðstofa, gott eldhús, baðherbergi með stórri sturtu, sjónvarpsstofa, tvöfaldur bílskúr þar er helmingurinn innréttaður sem íbúð/vinnurými, stór og skjólsæll garður með heitum potti og góðri verönd, steinlögð innkeyrsla með hitalögnum, mikil lofthæð, forhitari fyrir vatnið.
Einbýlishúsið er vel hirt af eigendum og vel tækjum búið. Öryggismyndavélar á öllum hliðum, heiti potturinn er stýrður með appi, golfhermir er í bílskúrnum. Rólegt hverfi og stutt í skóla og leikskóla og aðra þjónustu. 
Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson löggiltur fasteignasali í síma 623-1717 eða [email protected]

Nánari lýsing eignar: 
Forstofa er flísalögð og með góðum fataskáp.
Eldhús: Góð dökk innrétting með eyju. Gashelluborð, stór háfur. Bakaraofn og tengi fyrir uppþvottavél. Hlýlegur hlaðinn og bogadreginn veggur. Flísar á gólfi og mosaíkflísar á vegg. 
Þvottahús: Flísar á gólfi, ljós innrétting. Vélar í vinnuhæð. Nægt skápapláss. Innangengt inn í bílskúr.  
Stofan. Stór og rúmgóð stofa með parketi á gólfi og mikilli lofthæð.
Garður: Gengið er út í stóran afgirtan viðhaldslítinn bakgarð með fjarstýrðum heitum potti og fallegri verönd. Vel smíðuð verönd með skjólveggjum, steinhellur og grasblettur ásamt fallegum gróðri. Mjög skjólsæll bakgarður að sögn eigenda þar sem norðanáttin nær ekki til. 
Sjónvarpshol: Stórt sjónvarpshol og hlýlegt. Parket á gólfi.  
Hjónaherbergi: Afar rúmgott með parketi á gólfi og með stóru fataherbergi. 
Barnaherbergi: Tvö góð parketlögð herbergi með skápum. Bæði herbergin eru rúmlega 10m2.  
Baðherbergi: Flísar á gólfi. Góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, stór sturta með glervegg. Vatnið er forhitað. Gluggar.

Bílskúr/aukaíbúð:
Bílskúr: Tvískiptur. Annars vegar er hægt að ganga inn í bílskúrinn að baka til og hins vegar er innangengt í bílskúrinn úr þvottahúsinu. 
Forstofa: Flísar á gólfi með skáp. 
Eldhús: Ljós innrétting með flísum á gólfi. 
Stofa/herbergi: Flísar á gólfi. Gott alrými sem hægt er að nota sem vinnustofu eða sem íbúð. Gluggar. 
Baðherbergi: Sturta og salerni. Lítil ljós innrétting. Flísar á gólfi.  
Um er að ræða rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með aukaíbúð í rólegu hverfi. Góð upphituð innkeyrsla og vel hirtur garður. Stutt er í skóla, leikskóla, útivistarsvæði, verslanir og þjónustu. 
Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson löggiltur fasteignasali í síma 623-1717 eða [email protected]
Frítt og skuldbindingarlaust verðmat - Hafðu samband í síma 623-1717 eða [email protected].



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.