Efstaleiti 11, 103 Reykjavík (Kringlan/Hvassal)
129.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
135 m2
129.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
81.170.000
Fasteignamat
98.300.000
Opið hús: 23. september 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Efstaleiti 11, þann 23. september 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Fasteignasalan TORG kynnir:  Glæsileg útsýnisíbúð á efstu hæð á þessum eftirsótta stað Efstaleiti 11 Reykjavík. Eigninni fylgir BÍLSkÚR og TVÖ BÍLASTÆÐI í lokaðri bílageymslu. Vandaðar innréttingar með steinklæddum borðum, glæsilegt fiskibeinaparket á gólfum, þvottaherbergi innan íbúðar, gólfsíðir gluggar og stórkostlegt útsýni til allra átta. Eignin er skráð skv f.m.r 135,3fm og þar af er bílskúr 29,7fm. Einungis tvær íbúðir á hæðinni og engin íbúð liggur að eigninni nema frá hæðinni að neðan. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali gsm 898-6106 eða [email protected]

Sækja söluyfirlit hér

Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu með parketi á gólfi og  fjórföldum fataskáp sem nær uppí loft.
Eldhús: Eldhúsið er glæsilegt og vel útbúið með vandaðri innréttingu frá Nobilia sem er sérhönnuð inn í íbúðina með miklu skápaplássi og vönduðum hreinlætistækjum, stór eyja klædd stein á borði og með stækkuðu spanhelluborði frá Bora pure með innfelldum gufugleypi. Ísskápur og uppþvottavél eru innfeld og fylgja með.
Stofa: Stofan er samliggjandi eldhúsi, björt og opin. Fallegt fiskibeinaparket er á gólfi, stórir gólfsíðir gluggar á tvo vegu hleypa góðri birtu inn og útgengt er á rúmgóðar suðursvalir með gler handriði og stórkostlegu útsýni.
Svefnherbergi: herbergin eru tvö bæði með parketi á gólfi og í hjónaherbergi eru mjög rúmgóðir fataskápar sem ná uppí loft.
Baðherbergi: á baðherberginu eru flísar á gólfi og veggjum að hluta, falleg innrétting með stein á borði og sturta með glerskilrúmi. Salerni er upphengt og handklæðaofn er á baðherberginu.
Þvottaherbergi: innan íbúðar er gott þvottaherbergi með flísum á gólfi, innréttingu með vaski og opnanlegur gluggi er á þvottaherberginu.
Bílskúr og bílastæði: í sameign (bílakjallara) er bílskúr sem fylgir eigninni, góð innrétting með vaski og fallegar flísar eru á gólfi, 3ja fasa rafmagn og hleðslustöð á sér mæli. Fyrir framan bílskúr og við hlið eru tvö stæði með góðu aðgengi sem fylgja einnig eigninni.
Sameign: í sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni og einnig tvær sameiginlegar hjóla og vagnageymslur og gengið er inn í aðra þeirra beint frá jarðhæð.

Niðurlag: Þetta er virkilega falleg og vönduð eign á efstu hæð með stórkostlegu útsýni. Eigninni fylgir bílskúr og tvö stæði í lokaðri bílageymslu. Lóðin og allt umhverfi er einstaklega vel frágengið með leiktækjum, göngustígum og góðri opinni hjólageymslu. Frábær þjónusta í næsta nágrenni og stutt í skóla og leikskóla.  Sjón er sögu ríkari.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali gsm 898-6106 eða [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.